Flokkar tekna og gjalda
Hver flokkur á sinn bókhaldslykil. Heitið birtist á öllum skjám, líka hjá eigendum; lykillinn fær sama heiti. Skiptireglan segir hvernig kostnaður á lykilinn skiptist á íbúðir, í áætlun, húsfélagsgjöldum og rauntölum: jafnt, eftir eignarhluta, eða eftir hlutfallstölum í sameign sumra. Sjálfgefið fylgir 45. gr. fjöleignarhúsalaga. Rekstrargjöld eru ýmist fastur kostnaður, sem verður ekki dreginn úr, eða breytilegur; óregluleg gjöld eru alltaf breytileg.